Ungmenni
Hvað geri ég þegar ég lýk verkefninu Eigin framþróun?


Hvað geri ég þegar ég lýk verkefninu Eigin framþróun?

Að ljúka verkefnaáætlun Eigin framþróunar er mikilvægt skref í að styrkja trú þína og vitnisburð og undirbúningur fyrir musterissáttmála. Þú hefur lært að taka á þig skuldbindingar, framfylgja þeim og gefa stöðu um framþróun þína. Þetta ferli ætti að halda áfram er þú heldur þér á veginum til musterisins og halda áfram að þróa eiginleika sem munu hjálpa þér út í gegnum lífið. Þú getur haldið áfram framþróun þinni með því að ávinna þér Heiðurs býflugu eða með því að vinna aftur í gegnum verkefnaáætlun Eigin framþróunar.

Ávinna Heiðurs býflugu

Ljósmynd
heiðurs býfluga

Heiðurs býflugna skrautið var áður fyrr veitt stúlkum sem voru viljugar að gera meira en krafist var. Til að halda framþróun þinni áfram þá getur þú áunnið Heiðurs býflugna skraut sem hægt er setja á Kvendómshálsmen þitt samhliða Kvendóms nisti þínu. Þú getur áunnið Heiðurs býflugna skrautið eftir að hafa lokið við bæði eftirfarandi skilyrði:

  1. Lesa Mormónsbók aftur. Daglegt ritningarnám er venja sem mun styrkja trú þína og hjálpa þér að meðtaka persónlegan innblástur og leiðbeiningar út í gegnum líf þitt. Ef þú lest í einungis fimm mínútur á degi hverjum getur þú lokið við lestur Mormónsbókar á einu ári.

  2. Þjóna öðrum í samtals 40 klukkustundir. Sumar af þessum klukkustundum ætti þjónustan að vera að aðstoða aðra stúlku og hvetja hana áfram við Eigin framþróun hennar, ef hægt er að koma því við. Slík þjónusta ætti að vera undir leiðsögn forsætisráðs Stúlknafélagsins í deildinni eða greininni. Er þú hjálpar annarri stúlku getur þú:

    • Verið vinkona hennar.

    • Verið gott fordæmi um réttláta dóttur Guðs.

    • Hvatt hana til að hafa samráð við foreldra sína við val á gildisathugunum og gildisverkefnum.

    • Hjálpað henni að fullvinna gildisathuganir og gildisverkefni.

    • Hjálpað henni að skrá gildisathuganir og gildisverkefni.

    • Hjálpað henni að skilja þær reglur fagnaðarerindisins sem kenndar eru með gildisathugunum og gildisverkefnum.

    • Hvatt hana til að lesa Mormónsbók og rætt við hana um það sem hún les.

    • Hvatt hana til að miðla fjölskyldu sinni gildisathugunum og gildisverkefnum.

Hefja Eigin framþróun á ný

Vera má að þú viljir hefja verkefnaáætlun Eigin framþróunar á ný og ávinna þér aðra Kvendómsviðurkenningu.

Prenta