Barnavinur
Minn eigin vitnisburður
Janúar 2024


„Minn eigin vitnisburður,“ Barnavinur, jan. 2024, 38.

Skrifað af ykkur

Minn eigin vitnisburður

Ég heiti Chloe og ég er níu ára. Áhugamál mín eru að leika tennis, syngja og eignast vini.

Ég elska að fara í kirkju og mér finnst gaman að hjálpa í Barnafélaginu. Það lætur mér líða vel. Ég elska líka að þjóna. Ég elska fjölskyldu mína svo mikið. Ég hjálpaði Önnu, yngri systur minni, að læra að hjóla. Stundum hjálpa ég mömmu við að vaska upp.

Ég elska líka að lesa Mormónsbók með fjölskyldu minni. Dag nokkurn, þegar ég las söguna um Ammon, skynjaði ég heilagan anda í hjarta mínu. Það kvöld sagði ég við fjölskyldu mína: „Nú veit ég af hverju fólk segir að Mormónsbók sé sönn.“ Ég fann í hjarta mér að sögurnar sem við lásum í Mormónsbók hafi raunverulega gerst.

Ég veit að kirkjan er sönn. Ég veit að sögur Mormónsbókar eru sannar. Ég veit spámenn eru kallaðir af Guði. Ég veit að trúboðarnir geta hjálpað okkur að fylgja Jesú. Í nafni Jesú Krists, amen.

Alt text

Myndskreyting: Giovanni Abeille