2022
Einblínið á musterið – Útdráttur
Nóvember 2022


Einblínið á musterið

Útdráttur

Ljósmynd
Tilvitnun Nelsons á veggspjaldi

Hala niður PDF-skjali

Kæru bræður og systur, á þessum fimm stórkostlegu aðalráðstefnuhlutum höfum við enn og aftur upplifað að himnarnir eru opnir! Ég bið þess að þið hafið skráð áhrif ykkar og munið fylgja þeim eftir. Himneskur faðir og hans elskaði sonur, Jesús Kristur, eru reiðubúnir til að hjálpa ykkur. Ég hvet ykkur til að auka viðleitni ykkar til að leita hjálpar þeirra.

Nýlega fengum ég og systir Nelson tækifæri til að frumskoða nýju fjórðu seríuna af Mormónsbókarmyndböndunum. Þau innblésu okkur! …

Mikilvægt er að frelsarinn hafi valið að birtast fólkinu í musterinu. Þetta er húsið hans. Það er fyllt af krafti hans. Við skulum aldrei missa sjónar á því sem Drottinn er að gera fyrir okkur núna. Hann er að gera musteri sín aðgengilegri. Hann er að flýta fyrir því að við byggjum musteri. Hann er að auka getu okkar til að hjálpa við samansöfnun Ísraels. Hann gerir það líka auðveldara fyrir okkur að verða andlega fáguð. Ég lofa því að aukinn tími í musterinu mun blessa líf ykkar á þann hátt sem ekkert annað getur gert. …

Kæru bræður og systur, megið þið einblína á musterið á þann hátt sem þið hafið aldrei áður gert. Ég blessa ykkur, að þið vaxið nær Guði og Jesú Kristi á hverjum degi. Ég elska ykkur. Megi Guð vera með ykkur uns við hittumst heil, er bæn mín, í hinu helga nafni Jesú Krists, amen.

Prenta