2022
Varanleg hamingja – Útdráttur
Nóvember 2022


„Varanleg hamingja – Útdráttur,“ Til styrktar ungmennum, nóv. 2022

Varanleg hamingja

Útdráttur

Ljósmynd
Tilvitnun Gongs á veggspjaldi

Hala niður PDF-skjali

Að sönnu er varanleg gleði og eilífð með þeim sem við elskum kjarninn í hamingjuáætlun Guðs. …

Samt er ekkert okkar fullkomið, né nokkur fjölskylda. …

Við höfum þýðingarmikil tækifæri og gjöf til að uppgötva nýjan andlegan skilning, kærleika, iðrun og fyrirgefningu með hvert öðru og fjölskyldum okkar, um tíma og eilífð. …

Þungamiðjan í áætlun Guðs um endurlausn og hamingju, er loforð Jesú Krists, fyrir friðþægingu hans, að sameina anda okkar og líkama, svo þeir verði „aldrei framar aðskildir, svo að [við gætum] hlotið fyllingu gleðinnar“ [Kenning og sáttmálar 138:17]. …

Friðþæging – eining í Kristi – … getur leitt til samhljóms við hann og við hvert annað. …

Guð þekkir okkur fullkomlega. …

[Svo að] í andaheiminum gefst jafnvel þeim sem eru í synd og brotum tækifæri til að iðrast. …

Drottinn veitir okkur guðlegt tækifæri til að verða líkari sér þegar við bjóðum fram endurleysandi staðgengilshelgiathafnir í musterinu, sem aðrir þurfa en geta ekki framkvæmt á eigin spýtur. …

Að lagfæra sambönd okkar og lækna hjörtu okkar er erfitt, ef til vill okkur sjálfum ómögulegt. Himinninn getur þó veitt okkur styrk og visku umfram okkar eigin getu, til að vita hvenær við eigum að halda fast og hvernig á að sleppa takinu. …

Megum við nálgast frelsara okkar í hinu heilaga húsi, Drottins og megi hann færa okkur nær Guði og hvert öðru, þegar við samtengjum hjörtu okkar kristilegri samúð, sannleika og miskunn í öllum okkar kynslóðum – um tíma og eilífð, varanlega hamingjusöm. Það er mögulegt í Jesú Kristi; það er sannleikur í Jesú Kristi.

Prenta