2022
Hans ok er ljúft og byrði hans létt – Útdráttur
Nóvember 2022


„Hans ok er ljúft og byrði hans létt – Útdráttur,“ Til styrktar ungmennum, nóv. 2022.

Hans ok er ljúft og byrði hans létt

Útdráttur

Ljósmynd
J. Anette Dennis
Ljósmynd
Tilvitnun Dennis á veggspjaldi

Hala niður PDF-skjali

Margar ræður hafa verið fluttar af leiðtogum kirkjunnar um kærleika, einingu, elsku, góðvild, samúð, fyrirgefningu og miskunn. Ég trúi því að frelsarinn sé að bjóða okkur að lifa á æðri og helgari hátt – eftir hans kærleiksleið, þar sem allir geta fundið að þeir tilheyri sannlega og að þörf sé fyrir þá.

Okkur er boðið að elska aðra, að dæma þá ekki. Leggjum niður þessar þungu byrðar, það er ekki okkar að bera þær. Þeirra í stað, getum við tekið upp kærleiks- og samúðarbyrðar frelsarans. …

Þeir sem hann snerti skynjuðu elsku hans og sá kærleikur læknaði og umbreytti fólki. Elska hans hvatti þá til að vilja breyta eigin lífi. Að lifa lífinu á hans hátt, færir gleði og frið og hann bauð öðrum að lifa þannig af ljúfmennsku, góðvild og kærleika. …

Þegar við lærum smám saman að gera það sem hann æskir af okkur – ekki af skyldurækni eða jafnvel fyrir blessanirnar sem við gætum öðlast, heldur af hreinni ást til hans og himnesks föður okkar – mun elska hans flæða í gegnum okkur og gera allt það sem hann óskar eftir, ekki einungis mögulegt heldur auðveldara og léttara til lengdar og ánægjulegra en við gætum nokkru sinni ímyndað okkur. …

Allir þurfa að finna það að þeir tilheyri raunverulega og að þeirra er þörf í líkama Krists. Æðsta þrá Satans er að aðskilja börn Guðs og honum hefur tekist það vel, en það er mikill kraftur í einingu. Nú þurfum við að ganga hönd í hönd með hverju öðru á þessari erfiðu ferð í gegnum jarðlífið!

Prenta