Skýrsla endurskoðunardeildar kirkjunnar, 2019
Til Æðsta forsætisráðs Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu
Kæru bræður, eins og mælst er fyrir samkvæmt opinberun, skráðri í kafla 120 í Kenningu og sáttmálum, þá ákvarðar Umráðanefnd tíundar – sem skipuð er Æðsta forsætisráðinu, Tólfpostulasveitinni og Yfirbiskupsráðinu – útgjaldaheimildir kirkjusjóða. Einingar kirkjunnar nýta sjóði samkvæmt samþykktum fjárhagsáætlunum, í samræmi við reglur og starfsaðferðir.
Endurskoðunardeildin, sem samanstendur af viðkenndum almennum bókurum og er óháð öllum öðrum deildum kirkjunnar, hefur þá ábyrgð að framkvæma endurskoðun til að tryggja eðlilega fullvissu varðandi móttekin framlög, útgjöld og varðveislu eigna kirkjunnar.
Grundvallað á framkvæmdri endurskoðun, er Endurskoðunardeild kirkjunnar þeirrar skoðunar, að í öllu efnahagslegu tilliti, hafi meðferð allra framlaga, útgjalda, og eigna kirkjunnar fyrir árið 2019, verið stýrt og skráð í samræmi við samþykktar fjárhagsáætlanir, reglur og starfsaðferðir kirkjunnar. Kirkjan framfylgir þeim reglum sem hún kennir þegnum sínum, að eyða ekki um efni fram, forðast skuldir og leggja fyrir til mögru áranna.
Lagt fram með virðingu,
Endurskoðunardeild kirkjunnar
Kevin R. Jergensen
Framkvæmdastjóri