„Hvernig hjálpar hryggð Guði að skapi okkur við iðrun?“ Líahóna, sept. 2023.
Kom, fylg mér
Hvernig hjálpar hryggð Guði að skapi okkur við iðrun?
Páll postuli kenndi: „Sú hryggð sem er Guði að skapi leiðir til þess að menn taki sinnaskiptum, … en þegar menn hryggjast að hætti heimsins leiðir það til dauða“ (2. Korintubréf 7:10). Við kunnum að upplifa veraldlega hryggð, skömm og vonleysi þegar við syndgum. Samt, þegar við snúum okkur til frelsarans í iðrun, bjóðum við honum að breyta hjörtum okkar og snúa hryggð okkar í gleði (sjá Alma 36:18–20).
Hryggð Guði að skapi og sönn iðrun
Þegar við finnum hryggð Guði að skapi, gerum við okkur grein fyrir vanköntum okkar og viljum gera betur. Við finnum von um framtíðina – og skynjum elsku frelsarans til okkar.
Hugleiðið þessar spurningar er þið lesið 2. Korintubréf 7:
-
Hvað þýðir það þegar „hryggð ykkar leiddi til þess að þið bættuð ráð ykkar“? (vers 9).
-
Hvað gerum við þegar við upplifum hryggð Guði að skapi? (sjá vers 10–11).