2023
Gefa 72 eintök af Mormónsbók
September 2023


„Gefa 72 eintök af Mormónsbók,“ Líahóna, sept. 2023.

Frá Síðari daga heilögum

Gefa 72 eintök af Mormónsbók

Í hvert sinn sem ég opnaði munn minn til að tala um Mormónsbók, var heilagur andi með mér.

Ljósmynd
kassar með eintökum af Mormónsbók

Myndskreyting: Allen Garns

Á meðan á Kóvid-19 faraldrinum stóð, vorum við blessuð með líknarþjónustu fyrir eiginmann minn, Claude, á heimili okkar. Þar aðstoðuðum við, ég og börn okkar, við umönnun hans þar til hann læddist í burtu til okkar himneska heimilis.

Áður höfðum við Claude beðið varðandi það að breyta lokaðri verönd okkar í líknarherbergi, þar sem við gætum komið öllu fyrir sem hann þyrfti til að láta sér líða vel. Við fengum staðfestingu á því að við ættum að láta verða af því.

Til að endurhanna veröndina þurftu nokkrir iðnaðarmenn að hafa aðgang að húsi okkar. Sem betur fer voru bakdyr að verönd okkar, svo að iðnaðarmennirnir gátu komið og farið án þess að koma inn í aðalrými húss okkar. Þetta var mikil blessun á meðan Kóvid-19 takmörkunum stóð.

Eftir að lokið var við herbergi Claudes, komu hjúkrunarfræðingar daglega. Þeir voru góðviljaðir, ástríkir og vel að sér varðandi það sem við þörfnuðumst til að vel færi um Claude.

Þegar ég gekk í kirkjuna, var mér kennt að hver meðlimur sé trúboði.1 Þar sem ég elska að miðla fagnaðarerindinu, pantaði ég þrjá kassa af Mormónsbók, 24 bækur í hverjum kassa. Ég sór þess eið að gefa hverri persónu sem kæmi inn í hús okkar eintak.

Ég merkti mikilvæga kafla í hverri bók með nafnspjaldi sem ég hannaði með mynd sem ég hafði tekið af Salt Lake-musterinu. Ég límdi vitnisburð minn einnig á auða blaðsíðu fremst í bókinni. Áður en ég síðan gaf bókina iðnaðarmanni eða hjúkrunarfræðingi, þá útskýrði ég fyrir þeim hvað Mormónsbók væri.

Viðbrögð þeirra komu mér ánægjulega á óvart. Einungis einn neitaði að þiggja bók. Allir aðrir voru áhugasamir um að heyra um bókina. Sumir þökkuðu mér ákaflega og sögðu að þeir vissu um Mormónsbók og langaði í eintak. Nokkrir voru svo ánægðir að þeir föðmuðu mig jafnvel.

Ég er sannfærð um að þetta gerðist vegna þess að í hvert sinn sem ég opnaði munn minn til að tala um Mormónsbók, var heilagur andi með mér. Ég er sannfærð um að iðnaðarmennirnir og hjúkrunarfræðingarnir skynjuðu andann. Ég gaf öll 72 eintökin og nýlega pantaði ég 24 í viðbót.

Heimildir

  1. Sjá Marianne Holman, „‘Every Member a Missionary’ for 50 Years,“ Ensign, apr. 2009, 77.

Prenta