2021
Skemmtistund
Júlí 2021


„Skemmtistund,“ Til styrktar ungmennum, júlí 2021, 28–29.

Skemmtistund

Ljósmynd
Skemmtistund

Völundarhúsa veisla

Þessi þrjú systkini þurfa öll að komast í gegnum bæinn til að bera út boðskort í afmælisveislu ömmu þeirra, sem er að verða 90 ára. Getið þið hjálpað þeim að finna þrjár leiðir í gegnum völundarhúsið sem fara framhjá öllum húsum sem hafa rautt þak, þó án þess að systkinin fari um sömu götu?

Spurningakeppni um Nelson forseta

Kannið hversu vel ykkur gengur í þessari rétt eða rangt spurningakeppni um Russell M. Nelson forseta.

Rétt eða Rangt?

  1. Til að hjálpa foreldrum sínum að lifa eftir vísdómsorðinu, en þeir voru ekki virkir meðlimir kirkjunnar, braut hann allar áfengisflöskur þeirra og hellti innihaldinu í vaskinn.

  2. Hann var heilaskurðlæknir.

  3. Hann átti þátt í að þróa hjarta-lungnavél.

  4. Nelson forseti framkvæmdi fyrstu opnu skurðaðgerðina á hjarta í Utah.

  5. Hann á níu syni og eina dóttur.

  6. Hann hefur fullkomna tónheyrn.

  7. Hann framkvæmdi hjartaaðgerð á öldungi Spencer W. Kimball, sem seinna varð forseti kirkjunnar.

  8. Hann drukknaði eitt sinn næstum því í flúðasiglingu með fjölskyldunni.

  9. Hann vildi alltaf læra að skíða en fann aldrei tíma til þess.

  10. Þar sem stríð braust út þjónaði Nelson forseti ekki í fastatrúboði.

Myndasögur

Ljósmynd
niðamyrkur nema fyrir skopmyndaaugu

Ég myndi segja að það sé of snemmt fyrir ritningarnám fjölskyldunnar!

Kevin Beckstrom

Ljósmynd
maður klæddur í náttföt hulinn gluggatjöldum og öðrum munum, kona í rúmi kveikir á ljósi

Ég hélt það væri kominn jarðskjálfti eða að björn hefði komist í húsið eða eitthvað! Af hverju kveiktir þú ekki ljósið?

Ég vildi ekki vekja neinn.

Val Chadwick Bagley

Svör

Spurningakeppni um Nelson forseta 1. Rétt; 2. Rangt – Hann var hjartaskurðlæknir; 3. Rétt; 4. Rétt; 5. Rangt – það eru níu dætur og einn sonur! 6. Rétt; 7. Rétt; 8. Rétt; 9. Rangt – hann hefur verið virkur skíðamaður allt sitt líf; 10. Rétt

Prenta