Veggspjald
Þegnar Nefí voru lærisveinar Krists
og það er ég líka
Þegar frelsarinn var upprisinn og heimsótti hina réttlátu þegna Nefís bauð hann fólkinu „að [finna] naglaförin“ á höndum sínum og fótum. Hann vildi að þau vissu að hann væri „Guð Ísraels, … deyddur var fyrir syndir heimsins“ (3. Nefí 11:14). Mannfjöldinn fór til Jesú „hver af öðrum“ Eftir að allir höfðu átt sína persónulegu reynslu með Jesú Kristi, vissu Nefítarnir að hann var sá sem spámennirnir höfðu ritað um, að koma myndi (3 Nefí 11:15). Þrátt fyrir að Jesú Kristur standi ekki frammi fyrir okkur í dag, getum við samt átt persónulega reynslu með honum.
Ég get líkt og Nefítarnir komið til Krists, lært af honum og styrkt vitnisburð minn.