Til styrktar ungmennum
Tengjast
September 2024


Tengjast

James B.

13 ára, Rizal, Filippseyjum.

piltur með ritningar

Fyrir nokkru síðan var deildarviðburður og við fórum í musterið til að skírast fyrir hina látnu. Musterið er hús Guðs og ég upplifi mig öruggan og hamingjusaman.

Ritningarnar hjálpa mér líka að halda ró minni. Að lesa þær minnir mig á að himneskur faðir og Jesús Kristur munu ekki yfirgefa mig. Þegar ég er með spurningar eða veit ekki hvað ég á að gera í skólanum, finn ég að þær leiðbeina mér og hjálpa. Ef ég þarf að fara í próf eða ef ég skil ekki eitthvað, þá bið ég fyrst og geri svo mitt til að rifja upp.

Himneskur faðir og Jesús Kristur elska okkur svo mikið. Við verðum alltaf að minnast þeirra og glata ekki trú okkar. Við getum iðrast þegar við höfum gert eitthvað rangt. Ef við erum trúföst, munum við finna að þeir eru með okkur.