Orð til að lifa eftir
Bræður og systur í Kristi
Aðlagað úr aðalráðstefnuræðu, október 2023.
Fagnaðarerindi Jesú Krists kennir að öll séum við getin andasynir og andadætur okkar himnesku foreldra, sem svo sannarlega elska okkur. Við höfum öll guðlegt eðli, arfleið og möguleika.
Sem lærisveinar Jesú Krists, erum okkur boðið að auka traust okkar og elsku til okkar andlegu bræðra og systra.
Ljós nýs dags skín bjartar í lífi okkar þegar við sjáum og komum fram við samferðafólk okkar af virðingu og reisn og eins og sanna bræður og systur í Kristi.
Jesús sýndi þetta fordæmi fullkomlega í jarðneskri þjónustu sinni.
Í samfélagi heilagra er enginn staður fyrir fordómafulla hugsun eða hegðun.
Okkur er boðið að ganga saman, friðsamlega, með hjörtun full af kærleika til Guðs og allra manna.
Megum við njóta betur hins andlega skyldleika sem á milli okkar er og meta meira þá ólíku eiginleika og fjölbreyttu gjafir sem við öll höfum.