Hvernig að gera aðalráðstefnu markverðari fyrir ykkur
Prófið þessar þrjár hugmyndir til að upplifun af aðalráðstefnu sé markverðari.
Við nálgumst aðalráðstefnu og henni er ætlað að hafa áhrif sem varir lengur en ráðstefnuhelgina! Þessar þrjár ábendingar geta gert aðalráðstefnu markverðari fyrir ykkur
1. Undirbúið ykkur andlega
Fyrir ráðstefnuna getið þið undirbúið andann með ritningarnámi og með því að biðjast fyrir í einlægni. Þið gætuð jafnvel tekið föstu frá samfélagsmiðlum eða farið í sérstaka ferð í musterið. Andlegur undirbúningur mun hjálpa ykkur að skynja áhrif heilags anda.
2. Vera með spurningu í huga
Hvað hefur verið í huga ykkar undanfarið? Þið gætuð þurft að taka mikilvæga ákvörðun, haft áhyggjur af fjölskyldunni eða verið með spurningu varðandi fagnaðarerindið. Biðjið til himnesks föður varðandi það og hlustið eftir leiðsögn á ráðstefnunni.
Athugið þessa reynslu sem James átti í fyrra!
Þegar ráðstefnan byrjaði, vildi ég vita hvernig ég gæti betur notað kraft friðþægingar Krists í lífi mínu. Ég bað himneskan föður um að hjálpa mér að hlusta á andann, vita hvernig að taka réttar ákvarðanir og fá fyrirgefningu vegna minna röngu ákvarðana.
Þetta stóð upp úr ræðu Öldungs Dieters F. Uchtdorf:
„Á því augnabliki sem þið ákveðið að koma aftur og ganga leið frelsara okkar og lausnara, mun kraftur hans koma í líf ykkar og breyta því“.
Ég vissi hvað það var sem Drottinn vildi að ég heyrði og ég gat fundið fyrir andanum bera vitni um sannleiksgildi þess. Með því að vera með spurningu í huga mér, gat ég fengið persónuleg svör við bænum mínum.
James M., 16 ára, Norður-Dakóta, Bandaríkjunum
3. Notið meginreglu eða boð
Hlustið eftir kenningu eða meginreglu sem vekur athygli ykkar. Gerið það svo að markmiði að nota hana í lífi ykkar. Þið getið líka hlustað vandlega eftir beinum boðum spámanna og postula. Skrifið niður að minnsta kosti eitt boð og reynið að vinna að því. Að framkvæma í trú mun hjálpa ykkur að finna sannleika og kraft spámannlegrar kennslu.