2023
Hlauptu í átt að ljósinu
Mars 2023


„Hlauptu í átt að ljósinu,“ Barnavinur, mars 2023, 32–33.

Frá vini til vinar

Hlauptu í átt að ljósinu

Tekið úr „Running toward the Light“ (myndband), ChurchofJesusChrist.org.

Ljósmynd
Drengur hleypur með bakpoka

Myndskreyting: Adam Nickel

Ég ólst upp í hættulegum hluta stórborgar. Einn daginn gekk ég í skólann með peninga í vasanum. Peningarnir klingdu þegar ég gekk.

Ég þurfti að ganga framhjá nokkrum eldri strákum sem voru í klíku. Ég reyndi að vera öruggur með mig. Ég reyndi að vera óttalaus. En þeir heyrðu klingjandi hljóðið. Þeir vildu fá peningana og tóku að elta mig.

Ég hljóp eins hratt og ég gat til að komast í burtu. Ég fór inn í húsasund. Ég sá ljós við enda sundsins, svo ég hljóp í áttina að ljósinu. Fljótlega hættu þeir að elta mig og ég var öruggur.

Þetta varð að venju í lífi mínu. Ég hljóp frá því sem var slæmt og leitaði að því sem var gott. Stundum lét ég hugfallast, en ég hélt áfram að reyna að finna ljósið.

Þegar ég fór í háskóla lék ég í körfuboltaliðinu. Flestir liðsfélaga minna voru meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu. Ég lærði frá þeim um fagnaðaerindið. Ég lærði að ég er barn Guðs. Það þýddi að ég gæti risið ofar vandamálum mínum og orðið betri. Ég gekk í kirkjuna. Allt frá því hef ég reynt á hverjum degi að verða líkari himneskum föður mínum og syni hans, Jesú Kristi. Þið getið líka gert það!

Þegar þið hlaupið í átt að ljósinu, þá er von. Þið vitið að þið eruð að hlaupa í áttina að styrk, friði og hamingju. Við þurfum öll að hlaupa í átt að ljósinu.

Körfuboltaskemmtun

Ljósmynd
leikur með útskorna körfubolta

Öldungur Johnson lærði um fagnaðarerindið þegar hann lék körfubolta. Núna er röðin komin að ykkur!

  1. Klippið út ferningana hér að neðan og krumpið þá í kúlur.

  2. Skiptist á við að skjóta kúlunum í skál.

  3. Þegar kúla lendir í skálinni, skuluð þið opna blaðið og svara spurningunni!

  • Hver er ein leið til að fylgja himneskum föður?

  • Hvenær hefur þú valið rétt?

  • Hvernig skynjar þú ljós Jesú Krists í lífi þínu?

  • Hvernig finnur þú elsku himnesks föður?

  • Hvernig getur þú miðlað öðrum ljósi himnesks föður?

  • Skrifið ykkar eigin spurningu!

Prenta