2023
Jarðskjálftabænin
Mars 2023


„Jarðskjálftabænin,“ Barnavinur, mars 2022, 4–5.

Jarðskjálftabænin

Þegar Violet vaknaði, lék allt á reiðiskjálfi!

Þessi saga gerðist í Perú.

Lítil stúlka vaknar skelkuð og heldur á teppi

Violet var sofandi þegar drunur vöktu hana. Í fyrstu hélt hún þetta vera þrumu.

Drunurnar urðu sífellt hærri. Rúðurnar í svefnherberginu hennar titruðu.

Violet settist upp í hendingskasti. Þetta var jarðskjálfti!

Hún og fjölskylda hennar höfðu flutt til Perú ekki fyrir all löngu. Henni var ljóst að jarðskjálftar voru tíðir hér. Hún og fjölskylda hennar voru viðbúin þeim og höfðu æft rétt viðbrögð. Þetta var þó mun ógnvænlegra en hún hafði vænst. Hún fann líkama sinn skjálfa!

Violet hljóp inni í eldhúsið og skreið undir borðið. Nokkrum sekúndum síðar komu bróðir hennar og systir til hennar. Það gerðu mamma og pabbi líka.

„Flott hjá ykkur að muna eftir því sem við æfðum,“ sagði pabbi. „Eru allir í lagi?“

Bróðir Violet og systir kinkuðu kolli.

Violet var þó hrædd. Hún lokaði augunum. Það var erfitt að leiða hjá sér hristinginn umhverfis.

Violet mundi þá eftir að flytja bæn. Hún krosslagði arma og laut höfði. „Kæri himneski faðir,“ hvíslaði hún, „viltu vernda fjölskylduna mína.“

Fjölskylda á bæn undir borði í jarðskjálfta

Violet hélt áfram að biðja. Henni fannst sem einhver faðmaði sig. Þegar hún lauk bæninni, leit hún upp. Mamma og pabbi voru með krosslagða arma. Bróðir og systir hennar líka. Þau voru öll að biðjast fyrir! Jörðin skalf áfram. Violet fann þó fyrir frið í hjarta og huga.

Loks hætti skjálftinn. Violet og fjölskylda hennar dvaldi áfram undir boðinu litla stund, bara til öryggis.

„Hvernig líður þér?“ spurði mamma Violet.

„Allt í lagi,“ sagði Violet. „Í fyrstu var ég mjög hrædd. Bænin hjálpaði mér þó að líða betur. Hún faðmaði mömmu að sér. Hún var glöð yfir að himneskur faðir hafði hjálpað sér að finna frið.

PDF saga

Myndskreyting: Toby Newsome