2018
Hugrekki til að sýna góðvild!
April 2018


Láta ljós okkar skína

Hugrekki til að sýna góðvild!

Ljósmynd
dare to be kind

Hæ! Ég heiti Claudia og á heima í Ástralíu. Ég læt ljós mitt skína með því að sýna öðrum góðvild.

Ég kem öðrum til hjálpar

Bekkjarbróðir minn á erfitt með að læra. Ég kem honum til hjálpar þegar einhver stríðir honum og leiðbeini honum með námið þegar hann þarf þess. Kennarinn minn sagði þetta eina árið sem honum finndist hann tilheyra námsbekknum.

Litli bangsinn minn

Þegar frændi kennarans míns dó, varð hún afar sorgmædd. Hún þekkti ekki kirkjuna, svo ég sagði henni að himneskur faðir elskaði hana. Ég bjó til kort fyrir hana og sagði að hún myndi hitta frænda sinn aftur. Ég gaf henni litla kæra bangsann minn, til að hjálpa henni í gegnum sorgina.

Heppnir vinir

Nágranni minn Olivia, á erfitt með að ganga, tala og heyra. Mamma Oliviu segir Oliviu vera heppna að eiga vinkonu eins og mig. Ég er líka heppin!

Söngur og heilagur andi

Ég hef unun af söngvunum í Barnasöngbókinni. Fjölskylda mín segir það hjálpa þeim að finna fyrir heilögum anda. Heilagur andi veitir mér hlýja tilfinningu hið innra.

Prenta