2023
Jesús kenndi í musterinu
Maí 2023


„Jesús kenndi í musterinu,“ Barnavinur, maí 2023, 24–25.

Sögur um Jesú

Jesús kenndi í musterinu

Fjarlægið þessa síðu og brjótið hana saman til helminga. Haldið síðan myndinni á lofti meðan þið segið söguna.

Ljósmynd
PDF saga

Þegar Jesús Kristur var 12 ára gamall fór hann með Maríu og Jósef til Jerúsalem.

Á leiðinni heim gerðu María og Jósef sér grein fyrir því að Jesús var ekki með í för. Þau flýttu sér aftur til Jerúsalem til að finna hann.

María og Jósef leituðu og leituðu. Loks fundu þau Jesú í musterinu. Hann var að kenna fólki og svara spurningum þeirra. Allir voru forviða yfir því hvað hann vissi mikið um fagnaðarerindið. Jesús var að vinna verk himnesks föður þó að hann væri ungur.

Við getum líka hjálpað til við verk himnesks föður. Við getum miðlað fagnaðarerindinu. Við getum lært um musterið. Þetta mun hjálpa okkur að læra og vaxa eins og Jesús gerði.

Prenta