„Fylgja Jesú í sameiningu,“ Barnavinur, maí 2023, 6-7.
Ráðstefna – Sýna og segja
„Það er ljós Krists í hverju nýfæddu barni,“ Ada W., 10 ára, Utah, Bandaríkjunum
Ruoyun H., 11 ára., Tævan héraði, Tævan
„Berið vitni um að Kristur lifir,“ Morôni N., 8 ára., São Paulo, Brasilíu
Gabin F., 7 ára., Brussel, Belgíu
„Jesús elskar mig.“ J.D. B., 10 ára, Alabama, Bandaríkjunum
Uppáhalds ræða mín var ræða spámannsins. Hún fær mig til að vilja verða betri persóna og hjálpar mér að gera mér grein fyrir því hve mikilvægir bræður mínir eru mér. Ég get komið betur fram við þá og verið friðflytjandi.
Lydia S, 8 ára, Texas, Bandaríkjunum
Við ferðumst til að horfa á aðalráðstefnu á hóteli með öðrum meðlimum á svæði okkar. Ég nýt þess að hitta vini mína frá öðrum greinum og öðlast hvatningu frá ræðumönnunum.
Elise M., 10 ára, Naíróbí, Kenía
Uppáhaldið mitt er tónlistin, sérstaklega að horfa á fingur organistans fljúga yfir hin ólíku nótnaborð. Þessi ráðstefna var mjög sérstök, því vinur okkar flaug frá Tævan til að syngja með kórnum. Við erum hreykin af henni!
Tristan W., 7 ára, Nýja Taipeiborg, Tævan
Ég ann ráðstefnunni, því ég get heyrt orð Jesú Krists í gegnum spámanninn og postulana.
Shelem G., 6 ára, Durango, Mexíkó
Aðalráðstefna gerir mig hamingjusaman! Innblásinn boðskapur spámannsins veitir mér gleði.
Michel O., 7 ára, Rivers State, Nígeríu.
Ég nýt þess að fara til kirkju á ráðstefnu með fjölskyldu minni til að sjá spámanninn á stóra skjánum. Ég finn fyrir andanum í hjarta mér.
Levi B., 6 ára, Viktoríu, Ástralíu
Við komum saman sem fjölskylda fyrir ráðstefnuna og skrifum niður spurningar sem við höfum. Við horfum á ráðstefnuna og hjálpum hvert öðru að hlusta eftir svörum við spurningum okkar.
Carter, Asher, Sariah, Jet og Willow S., 6, 12, 8, 10 og 2 ára, Queensland, Ástralíu