Aðalráðstefna
Stuðningur við aðalvaldhafa, svæðishafa Sjötíu og aðalembættismenn
Aðalráðstefna október 2024


4:17

Stuðningur við aðalvaldhafa, svæðishafa Sjötíu og aðalembættismenn

Bræður og systur, það eru nú mín forréttindi að kynna aðalvaldhafa, svæðishafa Sjötíu og aðalembættismenn kirkjunnar og biðja um stuðning ykkar.

Við biðjum ykkur vinsamlega um að sýna stuðning ykkar á hefðbundinn hátt, hvar sem þið kunnið að vera. Ef einhver eru á móti einhverju því sem hér verður lagt fram, biðjum við þau að hafa samband við stikuforseta sinn.

Þess er beiðst að við styðjum Russell Marion Nelson sem spámann, sjáanda og opinberara og forseta Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu; Dallin Harris Oaks sem fyrsta ráðgjafa í Æðsta forsætisráðinu; og Henry Bennion Eyring sem annan ráðgjafa í Æðsta forsætisráðinu.

Þau sem eru því samþykk, sýni það.

Þau sem eru því mótfallin, sýni það.

Þess er beiðst að við styðjum Dallin H. Oaks, sem forseta Tólfpostulasveitarinnar og Jeffrey R. Holland, sem starfandi forseta Tólfpostulasveitarinnar.

Öll sem eru því samþykk, sýni það.

Ef einhver á móti, sýni þau það.

Þess er beiðst að við styðjum eftirtalda sem meðlimi Tólfpostulasveitarinnar: Jeffrey R. Holland, Dieter F. Uchtdorf, David A. Bednar, Quentin L. Cook, D. Todd Christofferson, Neil L. Andersen, Ronald A. Rasband, Gary E. Stevenson, Dale G. Renlund, Gerrit W. Gong og Ulisses Soares og Patrick Kearon.

Þau sem eru því samþykk, sýni það.

Séu einhver á móti, sýni þau það.

Þess er beiðst að við styðjum ráðgjafana í Æðsta forsætisráðinu og þá sem skipa Tólfpostulasveitina sem spámenn, sjáendur og opinberara.

Öll sem það samþykkja, sýni það.

Ef einhver á móti, sýni þau það með sama merki.

Við vekjum athygli á því að 6 nýir svæðishafar Sjötíu voru studdir á leiðtogafundi aðalráðstefnunnar, fimmtudaginn 3. október, sem síðan var tilkynnt á vefsíðu kirkjunnar. Við bjóðum ykkur að styðja þessa bræður í nýjum verkefnum þeirra.

Þau sem eru því samþykk, sýni það.

Séu einhver mótfallin, sýni þau það með sama merki.

Þess er beiðst að við styðjum aðra aðalvaldhafa, svæðishafa Sjötíu og aðalembættismenn eins og skipan þeirra er nú.

Öll sem eru því samþykk, sýni það með uppréttri hönd.

Séu einhver á móti, sýni þau það.

Bræður og systur, við þökkum fyrir stöðuga trú ykkar og bænir í þágu leiðtoga kirkjunnar.

Breytingar á svæðishöfum Sjötíu

Eftirtaldir svæðishafar Sjötíu voru studdir á leiðtogafundi sem haldinn var sem hluti af aðalráðstefnu:

Miguel A. Avila, Jean Pierre A. L. Haboko, Ramiro Ibarra Sanchez, George Katembo Njogu Munene, A. Enrique Texeira, Francisco Villanueva Rojas.