Kom, fylg mér: Mormónsbók
Hvers vegna býður Benjamín konungur okkur að verða sem barn?
13.–19. apríl Mósía 1–3
Hafið þið einhvern tíma fundið hjarta ykkar mildast er þið hafið horft á barn? Börn tala oftast frá hjartanu og tjá kærleika og einfaldar trúarlegar staðhæfingar. Frelsarinn kenndi: „Hver sem auðmýkir sig og verður eins og barn þetta, sá er mestur í himnaríki“ (Matteus 18:4).
Þetta gæti verið ein af ástæðum þess að Benjamín konungur bað fólk sitt að losa sig úr viðjum hins náttúrlega manns og verða sem börn (sjá Mósía 3:19).
Hvernig verðum við sem börn? Vísið til Mósía 3:19 til að fylla í eyðurnar með orðunum sem Benjamín konungur notaði til að lýsa barnslegum einstaklingi.
1.___________________________
2.___________________________
3.___________________________
4.___________________________
5.___________________________
6.___________________________