„Margo og Paolo,“ Barnavinur, nóv. 2023, 34.
Margo og Paolo
Vá, málverkið þitt er svaka flott!
Takk! Það er af gylltum ljónapa. Það er api sem lifir í Atlantsskógi. Feldurinn er appelsínugulur á litinn og –
Afsakaðu. Ég tala alltaf of mikið. Mér gengur ekki vel að eignast vini.
Jú, þér gengur vel! Þú hefur þegar eignast einn. Hún heitir Margo. Það er ég.
Þú ert ný hér, ekki satt? Hvað heitir þú?
Ég heiti Julia.
Segðu mér meira um apann þinn! Ég elska dýr. Mig langar einhvern daginn að verða dýralæknir.
Í alvöru? Mig líka!
Þú ættir þá að sjá páfagaukinn minn, Kíkí! Og bróður minn, Paolo. Hann er góður listamaður, eins og þú ert.
Það væri gaman!