2023
Hin stórkostlega áætlun himnesks föður
Nóvember 2023


„Hin stórkostlega áætlun himnesks föður.“ Barnavinur, nóv. 2023, 2–3.

Ráðstefnuboðskapur frá spámanninum

Hin stórkostlega áætlun himnesks föður

Aðlagað úr „Hugsið himneskt!“ aðalráðstefna, okt. 2023.

Ljósmynd
Jesús Kristur heimsækir Ameríku

Áætlun himnesks föður fyrir okkur er stórkostleg. Það sem við gerum í þessu lífi skiptir miklu máli. Friðþæging frelsarans er það sem gerir áætlun föðurins mögulega.

Frelsarinn þjáðist svo að hann getur huggað okkur, læknað okkur og komið okkur til bjargar á neyðarstundu. Vegna hinnar altæku friðþægingar Jesú Krists, er áætlun himnesks föður fullkomin áætlun! Hún gerir hverju okkar mögulegt að velja hvernig við viljum lifa.

Ég býð ykkur að byrja á því núna að „hugsa himneskt“! Þegar þið eigið í vanda hugsið þá himneskt! Þegar ykkar er freistað hugsið þá himneskt! Þegar lífið eða ástvinir valda ykkur vonbrigðum hugsið þá himneskt!

Þegar þið hugsið himneskt, munið þið vilja biðjast fyrir oftar og einlægar. Þið munið sjá erfiðleika í nýju ljósi. Þegar þið hugsið himneskt, mun trú ykkar aukast.

Guð lifir. Jesús er Kristur. Kirkja hans hefur verið endurreist til blessunar öllum börnum Guðs.

Hugsið himneskt!

Nelson forseti kenndi að ef við hugsum himneskt, getur það hjálpað okkur að taka góðar ákvarðanir. Teiknið eða skrifið í hverja sól það sem þið getið gert til að fylgja fordæmi frelsarans.

Ljósmynd
PDF-saga

Kom til Jesú, eftir Michael Malm

Prenta