Barnavinur
Hlusta á heilagan anda
Maí 2024


„Hlusta á heilagan anda,“ Barnavinur, maí 2024, 39.

Skrifað af ykkur

Hlusta á heilagan anda

Ljósmynd
Drengur heldur hendi upp að eyra

Dag einn á heimiliskvöldi var mamma mín að tala um heilagan anda. Hún sagði að heilagur andi tali oft með því að skjóta hugsun í huga ykkar.

Þegar hún sagði það var ég svo hissa. Nokkru áður hafði ég farið með bæn og beðið himneskan föður að hjálpa mér að heyra í heilögum anda. Ég vissi þá ekki að heilagur andi gæti talað við mig í huga mínum á þann hátt. Allt mitt líf hafði ég fengið hugsanir sem leiddu mig til að velja rétt. Nú vissi ég að þessar hugsanir komu frá heilögum anda!

Síðan þá hef ég tekið talsvert meira eftir heilögum anda. Bara síðasta sunnudag vorum við aftur með heimiliskvöld. Í þetta skiptið fjölluðum við um vitnisburði. Ég vissi ekki alveg hvað vitnisburður væri svo ég spurði pabba. Hann sagði mér að vitnisburður væri eitthvað sem maður vissi eða tryði að væri sannleikur. Hann sagði að við fáum vitnisburði okkar frá heilögum anda. Þá hugsaði ég um það hvernig ég fór að taka meira eftir heilögum anda og BÚMM! Ég var einnig með vitnisburð!

Það gerir mig mjög hamingjusaman að vita þetta. Mig langar að vera betri fylgjandi Jesú Krists og ávallt hlusta á heilagan anda.

Ljósmynd
PDF-saga

Myndskreyting: Brenna Vaughan

Prenta