Líahóna
Skilaboð frá Guði til mín
Júlí 2024


„Skilaboð frá Guði til mín,“ Líahóna, júlí 2024.

Frá Síðari daga heilögum

Skilaboð frá Guði til mín

Ég hafði ekki vitnisburð um Mormónsbók þar til Drottinn talaði til mín í gegnum bók Helamans.

Ljósmynd
brosandi karl með krosslagða arma

Ljósmynd birt með leyfi höfundar

Þegar vinur bauð mér í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu árið 2020, tók ég boðinu með semingi. Í fyrstu fannst mér þetta ekki vera staður fyrir mig til að vera á, en ég hélt áfram að sækja sakramentissamkomu. Að lokum var ég skírður.

Ég skildi samt ekki hugtakið að hafa vitnisburð eins og aðrir meðlimir kirkjunnar töluðu um. Ég og systurtrúboðarnir höfðum lesið nokkur ritningarvers saman en ég hafði aldrei opnað Mormónsbók einsamall. Þrátt fyrir mikla fyrirhöfn meðlima kirkjunnar við að taka á móti mér og halda mér virkum, byrjaði ég fljótlega að mæta seint í kirkju, sleppa fundum og fara aftur í veraldlegt ástand.

Það var svo dag einn að ég upplifði geðsveiflu og mér varð órótt í hjarta. Mér fannst ég hafa verið of óstöðugur, veraldlegur og afhuga því sem Guðs er. Ég áttaði mig á að ég var ekki á réttri braut. Þegar ég fann þessar tilfinningar, leit ég á ritningarnar sem voru á rúminu.

Ég ákallaði Guð um að segja eitthvað við mig. Ég fór með stutta bæn og beið þess að heyra hvað sem var. Ég þurfti á huggun og skýrleika að halda.

Þá heyrði ég nokkuð. Ég veit ekki hvort hljóðið hafi borist í huga mér eða í eyru, en ég heyrði orðin „Helaman 3:27“. Ég vissi að bók Helamans var í Mormónsbók og því greip ég ritningarnar og fór í efnisyfirlitið til að finna þessa tilteknu bók.

Það sem ég las næst voru skilaboð frá Guði til mín, sérstaklega á þessu tímabili í lífi mínu: „Þannig getum við séð, að Drottinn er miskunnsamur öllum þeim, sem af einlægu hjarta vilja ákalla hans heilaga nafn.“

Þessi ritningargrein breytti sýn minni á gjörðum mínum og á Mormónsbók. Ég skildi að framferði mitt og óeinlægni gagnvart Guði hafði verið rangt og að ég þyrfti að ákalla hann og iðrast. Ég veit að Guð mun ekki neita mér um miskunn sína og blessanir á meðan ég ákalla hann einlæglega og fylgi honum.

Þannig barst vitnisburður minn um Mormónsbók – bók sem ég hafði engan áhuga sýnt á að lesa. Ég veit að Guð lifir, að hann talar til okkar í dag og að Mormónsbók er sönn.

Prenta