2022
Mormónsbók var svarið mitt
September 2022


„Mormónsbók var svarið mitt,“ Líahóna, sept. 2022.

Frá Síðari daga heilögum

Mormónsbók var svarið mitt

Ég reyndi mikið að „laga“ Mömu Wong, en allt sem hún þurfti var hið einfalda, máttuga orð Guðs.

Ljósmynd
móðir og dóttir

Mama Wong og Annie

Ljósmynd birt með leyfi höfundar

Eftir að ég var skírð í júní 2002 sagði móður minni frá trú minni. Þó að mamma Wong hefði oft farið í kirkju með mér, vildi hún ekki læra meira.

Loks, 10 árum síðar, valdi Mama Wong að láta skírast. Ég var alsæl. Því miður hætti hún nokkrum árum síðar að styrkja vitnisburð sinn og kom með afsakanir fyrir því að fara ekki í kirkju.

Ég hvatti hana til að koma í kirkju, en það olli bara deilum. Að lokum, hætti ég að þrýsta á hana, svo ég myndi ekki skaða samband okkar.

Á aðalráðstefnunni í október 2019 bauð Russell M. Nelson forseti kirkjumeðlimum að „búa til [okkar] eigin áætlun“ til að styrkja vitnisburð okkar um endurreisnina.1 Þegar ég hugsaði um boðið hans, fann ég eindregið að ég ætti að gera eitthvað til að gera hlutina betri á milli mín og Mömu Wong.

Sem áramótaheitið mitt, þá einsetti ég mér að lesa Mormónsbók með Mama Wong. Alltaf þegar hún sagði að hún væri sár í augunum sagði ég: „Þú getur bara hlustað. Þegar hún sagðist þurfa að vaska upp fylgdi ég henni eftir inn í eldhús og hélt áfram að lesa upphátt.

Það kom í ljós að Mama Wong hlustaði vel og mundi eftir því sem ég las. Með tímanum kaus hún að lesa sjálf. Síðar sagði hún mér að venjulegur maður hefði ekki getað skrifað Mormónsbók. Hún efaðist ekki um að bókin væri orð Guðs. Mér finnst það vera kraftaverk að sjá hana fara frá því að vera áhugalaus yfir í að vilja lesa og bera vitni um Mormónsbók.

Eftir að Mama Wong var skírð hafði ég áhyggjur af því að hún hefði gengið í kirkjuna bara fyrir mig. Nú hefur hún sinn eigin vitnisburð. Í mörg ár reyndi ég að „laga“ Mömu Wong, en allt sem hún þurfti var hið einfalda, máttuga orð Guðs.

Ég er þakklát fyrir lifandi spámann, sem gefur okkur alltaf tímabæra leiðsögn. Ef við bregðumst við því sem hann kennir, munu miklar blessanir fylgja í kjölfarið. Þessi reynsla sýndi mér hversu mikið Drottinn vill blessa okkur. Það eina sem ég gerði var að lesa nokkra kapítula fyrir móður mína í Mormónsbók. Eftir það tók Drottinn við!

Heimildir

  1. Sjá Russell M. Nelson, „Lokaorð,“ aðalráðstefna, október 2019.

Prenta