2023
Áframhaldandi trúboð mitt
Júlí 2023


„Áframhaldandi trúboð mitt,“ Líahóna, júlí 2023.

Frá Síðari daga heilögum

Áframhaldandi trúboð mitt

Síðasta bréf föður míns hafði áhrif á framtíð mína með orðum sem voru mér afar dýrmæt.

Ljósmynd
opið umslag og bréf

Ég naut fastatrúboðs míns í fallegu fjöllunum í Cajamarca, Perú, þegar faðir minn fékk skyndilega heilablóðfall. Stuttu síðar var hann farinn.

Þegar ég hitti trúboðsforsetann, grét ég er ég minntist þess að faðir minn hafði kennt mér hvað það þýddi að vera trúboði og heilsteyptur maður. Hann hafði skrifað mér í hverri viku, gefið vitnisburð sinn, veitt mér máttuga innsýn í fagnaðarerindið og hvatt mig til að gera mitt besta.

Eftir fund okkar, rétti trúboðsforsetinn mér bréf – síðasta bréfið frá föður mínum. Bréf hans hafði áhrif á framtíð mína með orðum sem voru mér afar dýrmæt:

„Eftir nokkra mánuði bíður þín annað [verkefni] – gríðarlega erfitt verkefni, þar sem treyst verður á að þú helgir líf þitt þeim reglum sem þú hefur kennt, að lifa eftir því sem þú hefur hingað til aðeins prédikað. Þetta getur verið afar afkastamikið verkefni. Þú ert eins og súrinn í deiginu. …

Við elskum þig og biðjum daglega fyrir þér. Leggðu hart að þér og gerðu það sem rétt er.“

Þegar ég las orð hans, grét ég – af sorg, vitandi að þetta væru hans síðustu orð til mín í þessu lífi, og af gleði, er ég bar kennsl á kraft þeirra og tilgang fyrir mig. Ég vissi að næsta verkefni mitt – það sem eftir var af lífinu – myndi skipta sköpum. Það yrði tími raunverulegra prófrauna og myndi krefjast alls sem ég hafði lært og upplifað sem trúboði.

Ég veit að himneskur faðir hefur afar markvissa áætlun fyrir hvert og eitt okkar. Hann getur gert tíma okkar á jörðu betri og gefið okkur augu til að sjá og þekkja sannleika sinn. Ég hef séð það er ég hef helgað líf mitt honum og upplifað blessanir hans. Ég hef líka séð það er ég og mín fallega eiginkona höfum unnið saman að því að skapa fjölskyldu fulla af vonum, börnum og fagnaðarerindinu.

Frelsarinn hefur fært okkur styrk þegar við höfum farið á hnén, hugað að ritningunum, farið í musterið og þjónað öðrum. Ég hef séð hönd Drottins leggja mér lið á undursamlegum stundum í lífinu, er ég hef miðlað fagnaðarerindinu með fjölskyldu og vinum.

Áætlunarverk hans er „að gjöra ódauðleika og eilíft líf mannsins að veruleika“ (HDP Móse 1:39). Þetta áætlunarverk heldur svo sannarlega áfram.

Prenta