2008
PERSÓNULEGUR VITNISBURÐUR UM FRELSARANN
Mars 2008


PERSÓNULEGUR VITNISBURÐUR UM FRELSARANN

Ég held að skírn mín, þegar ég var 11 ára, hafi markað upphaf vitnisburðar míns um hann, hvers kirkju ég gekk í. Frá þeirri stundu hef ég þráð að fylgja kenningum Jesú Krists og lifa eftir reglum fagnaðarerindisins.

Ég hef hlotið vitnisburð minn um Jesú Krist smám saman og hann hefur aukist með þátttöku minni í kirkjunni. Ég hef oft skynjað mikla elsku hans til okkar í gegnum fegurð náttúrunnar og það eykur þakklæti mitt til hans. Þegar ég hef fastað og beðist fyrir, hef ég fundið vitnisburð andans og hlotið bænheyrslu. Ég veit að Jesús Kristur er málsvari okkar hjá himneskum föður. Ég hef notið návistar hans þegar ég tilbið hann oft í musterinu.

Allt mitt líf hefur vitnisburður minn vaxið og styrkst og nú er enginn vafi í huga mínum um að Jesús Kristur er sonur Guðs—frelsari minn og lausnari. Sú vitneskja færir mér fullvissu og frið.

Prenta