2008
JESÚS ELSKAR OKKUR
Mars 2008


JESÚS ELSKAR OKKUR

Dag nokkurn sat ég á sófanum og hlustaði á geisladisk. Þegar sálmurinn „Kenn mér hans ljósið og kærleik að fá“ (Sálmar, nr. 116) byrjaði, hugsaði ég um Jesú Krist og fórn hans í þágu okkar allra. Ég minntist kærleika hans, auðmýktar, samúðar og ég fylltist þakklæti. Andi Drottins bar mér vitni um elsku frelsarans til okkar.

Tveggja ára gamall sonur minn sat við hlið mér og horfði á myndir af Jesú Kristi. Hann hlýtur að hafa skynjað eitthvað líkt og ég gerði, því hann leit upp og sagði: „Mamma, Jesús elskar þig!“

Jesús Kristur er hluti af mér og fjölskyldulífi mínu. Hann er í huga mínum og hjarta. Fagnaðarerindi hans hefur breytt lífi mínu.

Prenta