2008
ÉG ER SÍÐARI DAGA HEILAGUR
Mars 2008


ÉG ER SÍÐARI DAGA HEILAGUR

Þegar sonur okkar Nicolás var fimm ára fór hann í einn besta skóla borgarinnar. Skólinn er rekinn af annarri kirkju. Nicolás fékk inngöngu jafnvel þótt hann tilheyrði ekki þeirri kirkju.

Dag einn leiddi leiðtogi skólans og kirkjunnar Nicolás út úr kapellunni til að spyrja hann að því hvers vegna hann tæki ekki þátt í trúarathöfnum skólans.

Nicolás sagði: „Ég er Síðari daga heilagur.“

Maðurinn reyndi að fá Nicolás á sitt band með því að segja að allar kirkjur hefðu sannleika og tryðu á Jesú Krist.

Nicolás svaraði: „Foreldrar mínir kenna mér að virða kirkjuna ykkar, en ég vil vera Síðari daga heilagur.“ Maðurinn tók þetta svar hans gott og gilt og amaðist ekki meira við honum.

Nicolás er gott fordæmi, jafnvel foreldrum sínum, um að feta í fótspor Jesú Krists.

Prenta