2008
SÁTTMÁLSGJÖRÐ UM AÐ HLÝÐA OG FYLGJA HONUM
Mars 2008


SÁTTMÁLSGJÖRÐ UM AÐ HLÝÐA OG FYLGJA HONUM

Ég var 60 ára, vasar mínir voru tómir og líf mitt til skammar. Ég hélt að lífið væri aðeins mér til skemmtunar. Ég var týndur, augu mín blind og Jesús Kristur lauk þeim upp.

Skírn mín og staðfesting og sáttmálinn sem ég gerði við Jesú Krist eru kraftaverkin sem breyttu lífi mínu. Mér varð ljóst hvað það var sem mér gat hlotnast og hvað var mér mikilvægt. Nú er ég hamingjusamur, því ég hef kynnst Jesú Kristi.

Ég hefði aldrei trúað að jafn veraldlegur maður og ég myndi dag einn verða þegn kirkjunnar, prestdæmishafi og greinarforseti. Það er mér stórkostleg gjöf að þjóna Jesú Kristi, frelsara okkar.

Prenta