2008
VERA VIÐ HLIÐ HANS
Mars 2008


VERA VIÐ HLIÐ HANS

Fyrir um það bil fimm árum rétti Drottinn út hönd sína til mín og fagnaðarerindið breytti lífi mínu. Þökk sé friðþægingu hans að ég var leystur undan ákvörðunum fyrri tíðar og upplifði í hjarta mínu kraftaverk fyrirgefningar.

Jesús Kristur er við hlið okkar og styrkir okkur dag hvern, ef við erum verðug. Hann afmáir ekki aðeins syndir okkar og gleymir þeim, heldur lýsir ljós hans okkur einnig í leik og starfi.

Hann er frelsari okkar, sonur Guðs. Elska hans á sér engin takmörk. Ef við lifum líkt og hann vill að við lifum, munum við miðla elsku hans og eiga þá von að geta dvalið hjá honum og himneskum föður að eilífu.

Prenta