2019
Sýna og segja
Apríl 2019


Sýna og segja

Ljósmynd
Show and Tell
Ljósmynd
drawing of the temple

Ég elska það að sjá musterið.

Rebecca C., 9 ára, Aragua, Venesúela

Ljósmynd
Brooklyn B

Dag einn, er við fórum í bílinn, fór hann ekki í gang. Við athuguðum vélina, en ekkert virtist að. Mér fannst ég þurfa að biðjast fyrir, svo ég gerði það. Fáeinum mínútum síðar fór bíllinn í gang. Ég er svo glöð yfir að himneskur faðir getur alltaf hjálpað mér.

Brooklyn B., 9 ára, Quetzaltenango, Guatemala

Ljósmynd
Sasha K

Mér finnst gaman að spila fótbolta með yngri krökkum og kenna þeim nýja tækni. Ég nýt þess meðal annars að þjóna þannig.

Sasha, 11 ára, Moskvu, Rússlandi.

Ljósmynd
Vestina K

Fyrir tveimur árum kom nýr drengur í bekkinn til okkur í skólanum. Hann var óvinsamlegur við aðra. Allir fóru að kunna illa við hann og koma illa fram við hann. Það virtist gera hann sorgmæddan, svo ég gerði ekki það sama og hinir. Sumir vina minna tóku eftir því og fylgdu fordæmi mínu. Ég trúi því að ef ég geri það sem Guð vill að ég geri, þá verði ég hamingjusamari og öruggari. Ég trúi því að ef ég sýni hugrekki og segi það sem mér býr í huga, muni ég finna vini sem kunna við mig eins og ég er.

Vestina K., 11 ára, Vilnius, Litháen.

Prenta