2019
„Hvernig getur patríarkablessun mín hjálpað mér við ákvaðanatökur?“
Apríl 2019


Spurningar og svör

„Hvernig getur patríarkablessun mín hjálpað mér við ákvarðanatökur?“

Ljósmynd
girl walking

Okkar eigin Líahóna

Patríarkablessanir eru leið himnesks föður til að hjálpa okkur að bera kennsl á það hver við vorum í fortilveru okkar, erum í jarðlífinu og munum verða um eilífð. Með því að þekkja þennan sérstaka sannleika um okkur sjálf, hjálpar það okkur að fylgja þeirri áætlun sem Guð hefur fyrir okkur. Við vitum hver við erum, hvers vegna við erum hér og hvar við getum verið. Þar sem Líahóna starfaði eftir trú og ástundun Nefís og fjölskyldu hans, er þau fylgdu ráðum þess (sjá 1 Nefí 16:28), þá getum við líka verið trúföst og iðin í að fylgja okkar eigin Líahóna og ráðum þess, sem mun leiða okkur að guðlegum möguleikum okkar.

Öldungur Utai, 20 ára, Salta trúboðinu, Argentínu.

Eilíf yfirsýn

Hvenær sem mér finnst ég ráðalaus við ákvarðanatökur, þá sný ég mér að patríarkablessun minni og íhuga guðlega opinberun hennar. Þá verður ákvörðunin auðveld. Það hjálpar mér ekki einungis að þreyja jarðneskt líf mitt og uppskera blessanir sem lofaðar eru, heldur minnir mig líka á að undirbúa mig undir að ganga einhvern tíma verðuglega inn í ríki Drottins. Það hjálpar mér stöðugt að vaxa í trú, treysta á vilja Drottins og lifa með eilífðarsjónarmið.

Abegail F., 18 ára, Cagayan Valley, Filippseyjum

Himneskt ráð

Patríarkablessun mín veitir mér ráð frá himneskum föður mínum. Ef ég fylgi því ráði, þá veit ég að ég mun meðtaka opinberun varðandi þær ákvarðanir sem ég þarf að taka. Hann svarar sumum spurningum mínum, jafnvel áður en ég spyr.

Cami H., 16 ára, Utah, Bandaríkjunum

Hlusta á andann

Ef þú ert að leita að huggun og leiðsögn eða svari við brennandi spurningu, þá geturðu beðið einlæglega varðandi það og lesið patríarkablessun þína með einbeittu hjarta, um leið og þú hlustar eftir andanum. Það hjálpar líka að leita í ritningunum. Ég trúi því að ef þú gerir þetta með raunverulegri trú, mun Drottinn svara þér, á hans tíma, eins og best verður á kosið.

Kezia B., 15 ára, Havaí, Bandaríkjunum

Fyrirheitnar blessanir

Patríarkablessanir segja okkur hvað það er sem Guð vill blessa okkur með. Hann veitir okkur viðvaranir og útskýrir hvernig við getum orðið líkari honum. Þegar við vitum hvað himneskur faðir hefur áætlað fyrir okkur og hvernig við getum öðlast það, getum við valið og hegðað okkur í samræmi við það til að hljóta það.

Hunter H., 18 ára, Utah, Bandaríkjunum

Prenta