83 Borinn er sveinn í Betlehem Fagnandi 1. Í Betlehem er barn oss fætt, barn oss fætt. Því fagni gjörvöll Adams ætt. [Chorus] Hallelúja, hallelúja. 2. Það barn oss fæddi fátæk mær, fátæk mær. Hann er þó dýrðar Drottinn skær. [Chorus] Hallelúja, hallelúja. 3. Hann var í jötu lagður lágt, lagður lágt. en ríkir þó á himnum hátt. [Chorus] Hallelúja, hallelúja. 4. Hann vegsömuðu vitringar, vitringar. hann tigna himins herskarar. [Chorus] Hallelúja, hallelúja. 5. Þeir boða frelsi’ og frið á jörð, frið á jörð. og blessun Drottins barnahjörð. [Chorus] Hallelúja, hallelúja. 6. Vér undir tökum englasöng, englasöng. og nú finnst oss ei nóttin löng. [Chorus] Hallelúja, hallelúja. 7. Vér fögnum komu frelsarans, frelsarans. vér erum systkin orðin hans. [Chorus] Hallelúja, hallelúja. 8. Hvert fátækt hreysi höll nú er, höll nú er. því Guð er sjálfur gestur hér. [Chorus] Hallelúja, hallelúja. 9. Í myrkrum ljómar lífsins sól, lífsins sól. Þér, Guð, sé lof fyrir gleðileg jól. [Chorus] Hallelúja, hallelúja. Texti: Latn. sálmur frá 14. öld. Íslensk þýðing: Valdimar Briem Lag: Danskt lag frá miðöldum Lúkasarguðspjall 2:1–20 Matteusarguðspjall 2:1–11