75
Það aldin út er sprungið
Blíðlega
1. Það aldin út er sprungið
og ilmar sólu mót,
sem fyrr var fagurt sungið
af fríðri Jesserót.
Og blómstrið það á þrótt
að veita vor og yndi
um vetrar miðja nótt.
2. Þú ljúfa lilju rósin
sem lífgar helið kalt
og kveikir kærleiks ljósin
og krýnir lífið allt.
Ó, Guð og maður greið
oss veg frá öllu illu
svo yfirvinnum deyð.
Texti: þýskur höfundur, ókunnur, 16. öld
Lag: Frá 15. öld. M. Practorius radds. 1609
Íslensk þýðing: MatthÍas Jochumsson, 1835–1920
Jesaja 11:1
Jóhannesarguðspjall 8:12