17
Hið mikla vígi vort er Guð
Tignarlega
Hið mikla vígi vort er Guð,
það virkið best mun halda.
Hjálpari æðstur er vor Guð,
illu mun sigri gjalda.
Allt vald er veldið hans
og ver gegn falli manns.
Hann einn á allan mátt,
allt skapar stórt og smátt.
Hann ríkir aldir alda.
Texti: Martin Luther, 1483–1546
Lag: Eignað Martin Luther
Íslensk þýðing: Jón Hjörleifur Jónsson, 1923