1. Heimilið er himni nær
er hjartað fyllist ást,
ásamt heill og hamingju
mun himins blessun fást.
Bæði’ í frelsi’ og fögnuði,
friði, tryggð og öryggi,
heimilið líkast himni gerum,
heima’ er gott að sjást.
2. Látum kærleiks kyndil bjartan
kalla börnin til,
þjónum Guði heitu hjarta,
hann ég nálgast vil.
Foreldranna fyrirmynd
færir börnum sanna mynd
af þeim stað á æðstum himni
er við stefnum til.
3. Daglega við bænir biðjum,
blessun hans er vís,
hans til orða sannleiks sækja
sál mín jafnan kýs.
Þakkargjörð og sálmasöng
segja látum dægrin löng!
Leið til himins okkur öllum
orði þínu lýs.
Texti: Carolyn Hamilton Klopfer, f. 1936. © 1985 IRI
Lag: W. Herbert Klopfer, f. 1936. © 1985 IRI
Íslensk þýðing: Friðrik Guðni þórleifsson, 1944