56
Bjargið alda
Tignarlega
1. Bjargið alda borgin mín,
byrg þú mig í skjóli þín.
Heilsubrunnur öld og ár
er þitt dýra hjartasár.
Þvo mig hreinan, líknarlind,
lauga mig af hverri synd.
2. Heilög boðin, Herra, þín
hefur brotið syndin mín.
Engin bót og engin tár
orka mín að græða sár.
Ónýt verk og ónýt trú
enginn hálpar nema þú.
3. Þegar æviþrautin dvín,
þegar lokast augun mín,
þegar ég við sælli sól
sé þinn dóms- og veldisstól:
Bjargið alda, borgin mín,
byrg mig þá í skjóli þín.
Texti: Augustus M. Toplady, 1740–1778
Lag: Thomas Hastings, 1784–1872
Íslensk þýðing: MatthÍas Jochumsson, 1835–1920