94 Kölluð til að þjóna Með sannfæringu 1. Kölluð til að þjóna himins herra, valin til að vitna´ um nafnið hans, víðri veröld boðskapinn hans bera, birta undur kærleikans. [Chorus] Áfram, alltaf áfram, er vér lofum nafnið hans. Áfram, alltaf áfram, er vér lofum nafnið hans. Áfram, sækjum áfram, fram með sigursöngva hljóm. Guð oss gefur styrk í þjónustu við æðsta konungdóm. 2. Kölluð til að öðlast æðstu blessun eins og konungs börnum hæfir best, játa nafn hans glöðum, heilum huga, honum lofgjörð flytja mest. [Chorus] Áfram, alltaf áfram, er vér lofum nafnið hans. Áfram, alltaf áfram, er vér lofum nafnið hans. Áfram, sækjum áfram, fram með sigursöngva hljóm. Guð oss gefur styrk í þjónustu við æðsta konungdóm. Sjá einnig Sálmar (1993), nr. 103 Texti: Grace Gordon, br. Íslensk þýðing: Jón Hj. Jónsson Lag: Adam Geibel, 1855–1933 Kenning og sáttmálar 4:2–3 Kenning og sáttmálar 20:19