99 Musterið Íhugult 1. Ég má í æsku minni til musterisins gá. Þar helgan texta´ að heyra, þar helgan anda´ að sjá, því musterið er herrans hús, þar helgir dómar bíða. Ég undirbý mig æskufús þess ákalli að hlýða. 2. Ég hlýt á helgum degi að halda þangað inn. Ég syng um Guð og segi: „Mér sæll er vilji þinn.“ Í musterinu máttur Guðs oss mjúkum böndum vefur. Þangað sæki´ eg sannleik hans, hann sameinað oss hefur. Lag og texti: Janice Kapp Perry, f. 1938 Íslensk þýðing: Friðrik Guðni þórleifsson © 1980 Janice Kapp Perry. þennan söng má afrita til nota heima eða Í kirkju, en ekki Í hagnaðarskyni. Kenning og sáttmálar 124:39–41