Ættarskráin mín
Glaðlega
1Ættartöluna alla skrái ég,
mína’ eigin ættarskrá,
Og ástæðan, að ég iðka slíkt
er alveg ljós mér hjá.
Mína minnisbók
mun ég vernda vel,
þar við mín saga skín.
Ættartala ættingjanna
er ættartalan mín.
2Þeir sem lifa nú, líka dánir,
mega innsiglast mér hjá.
Dag einn mun ég þá alla aftur
fá örugglega´ að sjá.
Hvílík gleði þá
heyra sagt, og sjá:
„Hve fjölskyldan er fríð!
Ég er þinn og þú ert minn
nú, og um eilífa tíð.“
Lag og texti: Jeanne P. Lawler, f. 1924. © 1982 IRI; endurskoðað.
Íslensk þýðing: Jón Hj. Jónsson