1. Guðspjöllin gjarnan les ég,
svo geti ég skilið nú
lausnarans orð um lífið
sem lifi´ eg í von og trú.
[Chorus]
Og nú glaður vil ég, Guð minn hér
ganga rétta veginn þinn.
Verði mín hugsun, von og þrá
að verða sem þú bendir á.
2. Guðspjöllin glaður les ég
og greini, hvert bæn mín fer.
Og hamingjan býr mér í hjarta,
minn hugur hjá Drottni er.
[Chorus]
Og nú glaður vil ég, Guð minn hér
ganga rétta veginn þinn.
Verði mín hugsun, von og þrá
að verða sem þú bendir á.
Texti: Naomi Ward Randall, f. 1908–2001. © 1969 IRI
Íslensk þýðing: Ingólfur Jónsson frá Prestbakka
Lag: Roy M. Darley, f. 1918. © 1969 IRI