101
Fjölskyldubæn
Með lotningu
1. Fjölskyldunnar höldum hópinn
með hjartans bænarlund,
og þökkum góðum Guði
fyrir gjafir hverja stund.
2. Þökkum honum hverja máltíð
og hús og fötin manns,
og fyrir foreldrana
og föðurelsku hans.
3. Ó, að við verðum alltaf
hans örugg liðsveit hér,
og auðmjúk bæna biðjum.
það sú blessun mörgum er.
Lag og texti: DeVota Mifflin Peterson, 1910–1996. © 1969 IRI
Íslensk þýðing: Ingólfur Jónsson frá Prestbakka