40 Mig langar að líkjast Jesú Með fúsleik 1. Mig langar að líkjast Jesú og feta í fótspor hans. Sem hann vil ég einnig elska í orðum og verkum manns. Ég freistast þó stundum að ráða´ ekki rétt, en ég reyni´ að heyra hljóðu rödd–ina´ er hvíslar: [Chorus] „Elskum hver annan sem elskaði hann, iðkandi vinsemd við hvern og einn mann, og vinnum af alúð að velferð hvers manns því þetta var kenningin hans.“ 2. Ég náungann ætla´ að elska og vinunum veita lið. Ég lít til þess dags, er Kristur mun koma með himna frið. Ég hugfesti háleita kenningu hans, svo að heilagur andi í huga mér segi: [Chorus] „Elskum hver annan sem elskaði hann, iðkandi vinsemd við hvern og einn mann, og vinnum af alúð að velferð hvers manns því þetta var kenningin hans.“ Lag og texti: Janice Kapp Perry, f. 1938 Íslensk þýðing: Jón Hj. Jónsson © 1984 Janice Kapp Perry. þennan söng má afrita til nota heima eða Í kirkju, en ekki Í hagnaðarskyni. Jóhannesarguðspjall 13:15, 34