Scripture Stories
43. kafli: Jesús reisir Lasarus upp frá dauðum


43. kafli

Jesús reisir Lasarus upp frá dauðum

Ljósmynd
Jesus visits Lazarus and his sisters, Mary and Martha - ch.43-1

Maður að nafni Lasarus bjó í Betaníu með systrum sínum, Maríu og Mörtu. Jesús elskaði Lasarus og systur hans og þau elskuðu hann.

Ljósmynd
Lazarus becomes very sick while the Savior is in another town - ch.43-2

Lasarus varð afar veikur. Frelsarinn var í öðrum bæ. María og Marta sendu boð til hans um að Lasarus væri veikur.

Ljósmynd
The Savior asks His disciples to go with Him to help Lazarus - ch.43-3

Frelsarinn bað lærisveinana að koma með sér til að hjálpa Lasarusi. Lærisveinarnir óttuðust að fara til Betaníu. Hún var nálægt Jerúsalem. Sumir íbúar Jerúsalem vildu drepa Jesú.

Ljósmynd
Jesus tells His disciples that Lazarus is dead, but He will bring him back to life - ch.43-4

Jesús sagði lærisveinunum að Lasarus væri dáinn. Hann sagðist ætla að lífga hann við. Með því kraftaverki myndu lærisveinarnir vita að hann væri frelsarinn. Jesús fór til Betaníu. Þegar hann kom þangað, hafði Lasarus verið dáinn í fjóra daga.

Ljósmynd
Martha tells Jesus that Lazarus would not have died if He had been there - ch.43-5

Marta sagði Jesú að Lasarus væri enn á lífi ef hann hefði komið fyrr. Jesús sagði að Lasarus myndi lifa á ný. Hann spurði Mörtu hvort hún tryði sér. Marta svaraði því játandi. Hún vissi að Jesús var frelsarinn.

Ljósmynd
Mary kneels at Jesus' feet crying - ch.43-6

Marta fór frá Jesú til að sækja systur sína, Maríu. María fór líka á móti Jesú. Margir fylgdu henni. María kraup grátandi að fótum frelsarans. Fólkið sem með henni var grét einnig. Jesús spurði hvar líkama Lasarusar væri að finna.

Ljósmynd
Jesus tells the people to move the stone in front of the place where Lazarus is buried - ch.43-7

Jesús fór að hellismunnanum þar sem Lasarus hafði verið lagður. Steinn var fyrir hellismunnanum. Hann bað fólkið að færa steininn.

Ljósmynd
Jesus prays to Heavenly Father - ch.43-8

Jesús leit upp. Hann þakkaði himneskum föður fyrir að bænheyra sig.

Ljósmynd
Jesus commands Lazarus to come forth - ch.43-9

Síðan kallaði Jesús hárri röddu. Hann sagði Lasarusi að koma út úr gröfinni. Lasarus gekk út. Margir þeirra sem sáu kraftaverkið trúðu nú að Jesús væri frelsarinn.

Prenta