2. kafli María og engillinn María og Jósef bjuggu í Nasaret. Þau voru afar gott fólk. Þau elskuðu hvort annað og ætluðu að giftast. Lúk 1:26‒27 Dag nokkurn kom engillinn Gabríel til Maríu. Hann sagði Maríu að Guð myndi blessa hana. Lúk 1:26, 28‒30 Gabríel sagði Maríu að hún yrði móðir sonar Guðs. Nafn hans yrði Jesús og yrði hann konungur allra réttlátra manna. Lúk 1:31‒33 María sagðist ætla að hlýða himneskum föður og verða móðir Jesú. Lúk 1:34–35, 38; 1 Ne 11:18‒21